Title: | Laxdæla saga og siðferðilegt uppeldi í skólum |
Author: |
|
Date: | 2018-12-31 |
Language: | Icelandic |
Scope: | 17 s. |
University/Institute: | Háskóli Íslands (HÍ) University of Iceland (UI) |
School: | Menntavísindasvið (HÍ) School of Education (UI) |
Series: | Netla - veftímarit um uppeldi og menntun;Sérrit 2018 – Bókmenntir, listir og grunnþættir menntunar. |
ISSN: | 1670-0244 |
DOI: | 10.24270/serritnetla.2019.14 |
Subject: | Bókmenntakennsla; Laxdæla saga; Orðaforði; Siðferði; Unglingastig grunnskóla |
URI: | https://hdl.handle.net/20.500.11815/1719 |
Citation:Atli Harðarson, Ólafur Páll Jónsson, Róbert Jack, Sigrún Sif Jóelsdóttir og Þóra Björg Sigurðardóttir. (2018). Laxdæla saga og siðferðilegt uppeldi í skólum. Netla – veftímarit um uppeldi og menntun. Sérrit 2018 – Bókmenntir, listir og grunnþættir menntunar. Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
|
|
Abstract:Rannsóknin sem hér segir frá er hluti af stærra verkefni sem fjallar um samspil
bókmenntakennslu og siðferðilegs uppeldis. Það var skipulagt með hliðsjón af
rannsóknarverkefni við The Jubilee Centre for Character and Virtues við háskólann
í Birmingham á Englandi. Í þessari grein er fjallað um tvær eftirfarandi spurningar
sem báðar varða orðaforða sem notaður er til að tala um siðferði:
i. Hvers vegna er mikilvægt að efla siðferðilegan orðaforða unglinga?
ii. Er hægt að nota Laxdæla sögu sem námsefni til að kenna unglingum orðaforða sem
þeir geta notað til að tala um siðferðilegar dygðir og lesti?
Fyrri spurningunni er svarað með vísun í skrif um siðfræði og siðferðilegt uppeldi og
færð rök fyrir því að vald á orðaforða til að ræða og hugsa um siðferði sé mikilvægur
hluti af siðferðisþroska.
Seinni spurningunni er svarað með rannsókn sem var gerð í þrem grunnskólum þar
sem stytt útgáfa af Laxdæla sögu var kennd á unglingastigi. Við lögðum próf fyrir
nemendur bæði áður en kennslan hófst og eftir að henni lauk. Auk megindlegra
gagna sem var aflað með þessum prófum söfnuðum við eigindlegum gögnum með
heimsóknum í kennslustundir, viðtölum við kennara og samræðum við rýnihópa
nemenda.
Greining á niðurstöðum prófanna benti til þess að kennslan hefði bætt skilning
nemenda á orðaforða um siðferðilegar dygðir. Í viðtölum við kennarana kom fram að
þeim þótti umfjöllunin um orðaforðann ekki taka tíma frá yfirferð sögunnar, heldur
greiða fyrir henni og gera hana auðveldari. Samtöl við rýnihópa nemenda staðfestu
að yfirferðin bætti við þann orðaforða sem þeir höfðu til að ræða um siðferðileg efni.
Svarið við seinni spurningunni er því að vel má nota Laxdæla sögu sem námsefni til
að auka siðferðilegan orðaforða.
|