Title: | Mat leikskólabarna á þátttöku í tilviksrannsókn |
Author: |
|
Date: | 2019-11-18 |
Language: | Icelandic |
Scope: | 1-18 |
University/Institute: | Háskólinn á Akureyri University of Akureyri |
School: | Hug- og félagsvísindasvið (HA) School of Humanities and Social Sciences (UA) |
Department: | Kennaradeild (HA) Faculty of Education (UA) |
Series: | Netla; |
ISSN: | 1670-0244 |
DOI: | 10.24270/serritnetla.2019.34 |
Subject: | Rannsóknir; Leikskólabörn; Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna; Research; Preschoolers; Convention on the rights of the child |
URI: | https://hdl.handle.net/20.500.11815/2284 |
Citation:Anna Elísa Hreiðarsdóttir og Kristín Dýrfjörð. (2019). Mat leikskólabarna á þátttöku í tilviksrannsókn. Netla. https://doi.org/10.24270/serritnetla.2019.34
|
|
Abstract:Greinin fjallar um mat og þátttöku leikskólabarna í rannsókn um sköpunarsmiðjur
í leikskólanum þeirra og var tilgangurinn að rýna í hvernig börn upplifðu þátttöku
í rannsókninni. Bakgrunnur rannsóknarinnar byggir á ákvæði í Barnasáttmála
Sameinuðu þjóðanna um þátttöku barna. Gagna var aflað í mars (smiðjur) og júní
(rýniviðtal) 2018. Níu fimm ára börn voru þátttakendur í sex vinnusmiðjum þar
sem leikið var með stafræn tæki, legokubba og annan skapandi efnivið. Meðan á
smiðjum stóð söfnuðu rannsakendur gögnum með fjölbreyttum hætti, svo sem með
myndbandsupptökuvél og myndavél og héldu dagbækur, börnin öfluðu gagna með
smámyndavél (GoPro), spjaldtölvu, fylltu út matsblað eftir hverja smiðju og rýniviðtal
var tekið við þau eftir að smiðjum lauk. Í greininni eru matsblöð barnanna, dagbækur
rannsakenda og rýniviðtal við börnin lögð til grundvallar niðurstöðum.
Helstu niðurstöður sýna að börn eru verðugir þátttakendur í rannsókn og að
sjónarhorn þeirra varpar nýju ljósi á gögnin í rannsókninni. Fram kom að börnin
virtust vera ánægðust með þau verkefni sem þau höfðu sjálf vald yfir, hvort sem það
sneri að sköpun eða tækjabúnaði, þannig heillaði smámyndavélin sem þau stýrðu sjálf,
litlu stafrænu tækin og að taka viðtöl hvert við annað með spjaldtölvu. Hins vegar
er vert að benda á að einn af þeim þáttum sem kom fram í niðurstöðum er að sum
barnanna upplifðu viðveru rannsakenda í smiðjum stundum truflandi. Það er vert
fyrir rannsakendur sem vinna rannsóknir með börnum að hafa hugfast.
|