Inngangur: Kynferðisleg áreitni og ofbeldi gagnvart börnum og unglingum er ein alvarlegasta ógn við heilbrigði þeirra. Markmiðið var að rannsaka algengi og áhrif þess á íslenska unglinga í 10. bekk. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin byggir á gögnum úr íslenska hluta HBSC-rannsóknarinnar á heilsu og lífskjörum skólabarna. Alls tóku
3618 íslenskir nemendur þátt í alþjóðlegri spurningalistarannsókn sem lögð var fyrir alla nemendur í 10. bekk í öllum skólum landsins að einum undanskildum. Reynsla nemenda af kynferðislegri áreitni og ofbeldi var metin með því að spyrja hversu oft þau hefðu gegn sínum vilja verið: a) snert með kynferðislegum hætti, b) verið látin snerta annan einstakling
með kynferðislegum hætti, c) verið reynt að hafa við þau samfarir eða munnmök eða d) einhverjum hefði tekist að hafa við þau samfarir eða munnmök. Niðurstöður: Niðurstöður leiddu í ljós að 14,6% (527) þátttakenda höfðu orðið fyrir einhvers konar kynferðislegri áreitni eða ofbeldi. Af þeim höfðu 4,5% (162) orðið fyrir slíku einu sinni en 10,1% (365) höfðu annaðhvort orðið oftar fyrir ákveðinni gerð ofbeldis eða því hafði verið beitt gegn
þeim á margvíslegri hátt. Um 1% þátttakenda, eða 35 einstaklingar, sögðust hafa orðið mjög oft fyrir nær öllum gerðum ofbeldis og áreitni. Tíðni vanlíðunar og áhættuhegðunar var mun hærri hjá þeim sem höfðu orðið fyrir kynferðislegri áreitni eða ofbeldi. Ályktun: Þó niðurstöðurnar sýni að algengi kynferðislegrar áreitni og ofbeldis gegn unglingum sé svipað og í öðrum vestrænum löndum er það nokkuð hærra en sambærileg rannsókn á Íslandi leiddi í ljós fyrir áratug.
Introduction: Sexual abuse and sexual assaults against children and
adolescents is one of the most significant threats to their health. The
aim of the current study was to investigate its prevalence and effects on
Icelandic teenagers in the 10th grade.
Material and methods: The study is based on data collected for the
Icelandic part of the HBSC-project (Health and behaviour of schoolaged
children). Standardized questionnaires were sent to all students
in 10th grade in Iceland of which 3,618 participated. The students
experience of sexual abuse or assaults was assessed by asking them
how often they had been against their will a) touched in a sexual way,
b) made to touch someone else in a sexual way, c) the subject of an
attempted rape or d) subjected to rape.
Results: The results showed that 14.6% (527) participants had
experienced sexual abuse or assault. Of these, 4.5% (162) had one
such experience but 10.1% had either suffered certain type of abuse
or assault more than once, or had experienced more than one kind.
About 1% of participants (35) said that they had suffered many times
from many forms of abuse and assaults. The prevalence of poor mental
well-being and risk behaviour was much higher amongst those that had
experienced sexual abuse or assault.
Conclusion: Although the results show that the prevalence of sexual
abuse and assault against Icelandic adolescents is similar to other
Western countries, we find it to be higher than a previous study a
decade ago.