Title: | Skaðleg karlmennska? Greining á bókinni Mannasiðir Gillz |
Author: |
|
Date: | 2011-09-15 |
Language: | Icelandic |
University/Institute: | Háskóli Íslands University of Iceland |
School: | Félagsvísindasvið (HÍ) School of Social Sciences (UI) |
Series: | Netla;2011 |
ISSN: | 1670-0244 (eISSN) |
Subject: | Karlmennska; Kynjafræði; Jafnréttismál |
URI: | https://hdl.handle.net/20.500.11815/1565 |
Citation:Ásta Jóhannsdóttir og Kristín Anna Hjálmarsdóttir. (2011). Skaðleg karlmennska? Greining á bókinni Mannasiðir Gillz. Netla
|
|
Abstract:Í þessari rannsókn er reynt að fanga þá karlmennskuhugmynd sem Egill Einarsson
íþróttafræðingur heldur á lofti og skoða hana í ljósi fræðilegra kenninga um
karlmennsku og valdatengsl í samfélaginu. Kenningar um þróun karlmennskuhugmynda gera ráð fyrir að karlmennska sem hampað er í fjölmiðlum geti haft áhrif
á hugmyndir stráka um karlmennsku. Fjölmiðlar hafa hampað karlmennskuhugmynd Egils og þar með aukið lögmæti hennar. Helstu niðurstöður eru þær að
líklega hafi áhrif karlmennskuhugmyndar Egils verið vanmetin. Hún hafi alla burði
til þess að hafa mótandi áhrif. Eitt einkenni hennar er áhersla á útlit og umhirðu
líkamans sem hefðbundið telst kvenleg. Til að vega á móti því kvenlega er
ofuráhersla lögð á fjölda kynferðislegra sigra, stjórnun líkama og tilfinninga auk
undirskipunar annarra samfélagshópa. Innan orðræðunnar rúmast ekki virðing, ást,
umhyggja og samskipti á jafningjagrundvelli. Karlmennskuhugmynd Egils virðist
því líkleg til að stuðla
|