Opin vísindi

Íslandsvísur og viðtökur þeirra : Frá Guðmundi Magnússyni til Jóns Trausta

Show simple item record

dc.contributor.author Egilsson, Sveinn Yngvi
dc.date.accessioned 2024-01-10T01:06:49Z
dc.date.available 2024-01-10T01:06:49Z
dc.date.issued 2023-12-19
dc.identifier.citation Egilsson , S Y 2023 , ' Íslandsvísur og viðtökur þeirra : Frá Guðmundi Magnússyni til Jóns Trausta ' , Ritið , bind. 23 , nr. 3 , bls. 119-144 . https://doi.org/10.33112/ritid.23.3.5
dc.identifier.issn 1670-0139
dc.identifier.other 215017521
dc.identifier.other 3b212604-bd35-4db5-aabf-923ab0daaeaa
dc.identifier.uri https://hdl.handle.net/20.500.11815/4636
dc.description.abstract Íslandsvísur voru önnur ljóðabók Guðmundar Magnússonar (1873–1918) sem síðar skrifaði vinsælar sögur undir dulnefninu Jón Trausti. Bókin var prentuð árið 1903 í Ísafoldarprentsmiðju og vandað mjög til útgáfunnar með myndskreytingum eftir skáldið sjálft og listmálarann Þórarin B. Þorláksson (1867–1924). Ekki var um venjulega útgáfu að ræða heldur var bókin „prentuð sem handrit“ handa afmörkuðum hópi áskrifenda. Fyrsta ljóðabók Guðmundar, Heima og erlendis (1899), hlaut dræmar viðtökur og þessi litlu betri, þó að hún hefði að geyma ljóð sem urðu vinsæl í sönglögum eins og Draumalandið og „Eg vil elska mitt land“. Þjóðskáldið Matthías Jochumsson (1835–1920) birti kurteislegan en gagnrýninn ritdóm um Íslandsvísur í blaðinu Gjallarhorni 1903. Það var þó háðslegur niðurrifsdómur annars skálds, Sigurðar Sigurðssonar frá Arnarholti (1879–1939) í blaðinu Óðni 1905, sem hafði úrslitaáhrif fyrir bókina og höfund hennar. Guðmundur sagði síðar að hann hefði hætt að birta verk sín undir eigin nafni og tekið upp dulnefnið Jón Trausti til þess að sögurnar sem hann setti saman í framhaldinu væru óbundnar af slæmu orðspori hans sem höfundar. Í greininni er fjallað um Íslandsvísur sem ljóðabók og síðan gerð grein fyrir hinum afdrifaríku viðtökum þeirra.
dc.format.extent 1598569
dc.format.extent 119-144
dc.language.iso is
dc.relation.ispartofseries Ritið; 23(3)
dc.rights info:eu-repo/semantics/openAccess
dc.title Íslandsvísur og viðtökur þeirra : Frá Guðmundi Magnússyni til Jóns Trausta
dc.type /dk/atira/pure/researchoutput/researchoutputtypes/contributiontojournal/article
dc.description.version Peer reviewed
dc.identifier.doi 10.33112/ritid.23.3.5
dc.contributor.department Íslensku- og menningardeild


Files in this item

This item appears in the following Collection(s)

Show simple item record