Opin vísindi

Áhrif undirbúnings á gæði táknmálstúlkunar

Skoða venjulega færslu

dc.contributor.author Þóroddsdóttir, Hólmfríður
dc.contributor.author Gísladóttir, Karen Rut
dc.date.accessioned 2024-01-10T01:06:45Z
dc.date.available 2024-01-10T01:06:45Z
dc.date.issued 2023-09-20
dc.identifier.citation Þóroddsdóttir , H & Gísladóttir , K R 2023 , ' Áhrif undirbúnings á gæði táknmálstúlkunar ' , Ritið , bind. 23 , nr. 2 , bls. 165-188 . https://doi.org/10.33112/ritid.23.2.7
dc.identifier.issn 1670-0139
dc.identifier.other 215017474
dc.identifier.other 635f21a0-4f59-42ce-b107-a2613cb90a5f
dc.identifier.uri https://hdl.handle.net/20.500.11815/4634
dc.description.abstract Greinin sem hér birtist fjallar um táknmálstúlkun og áhrif undirbúnings á hugrænt álag túlka og tengsl þess við gæði táknmálstúlkunar. Þátttakendur í rannsókninni voru starfandi táknmálstúlkar á Íslandi. Rannsóknin var unnin með blönduðum rannsóknaraðferðum, þar sem tekin voru viðtöl við táknmálstúlka og send út spurningakönnun í tengslum við sérstök túlkaverkefni, auk þess sem hluti þátttakenda tók þátt í sérhönnuðu túlkunarprófi. Prófið var framkvæmt til að ná fram tölfræðilegum upplýsingum um áhrif undirbúnings á táknmálstúlkun og fá túlkana sjálfa til að lýsa undirbúningi sínum og greina þætti sem mikilvægt er að undirbúa fyrir túlkun. Niðurstöður rannsóknarinnar varpa ljósi á að undirbúningur bæði eykur skilning túlkanna á umræðuefninu sem túlka á og auðveldar þeim framsetningu túlkunarinnar. Þessi atriði draga úr hugrænu álagi og auka gæði túlkunar. Tölfræðilegar upplýsingar sýndu að í óundirbúnum túlkunum töpuðust tæp 20% þeirra aðalatriða sem átti að túlka, en einungis um 10% í undirbúnum túlkunum. Niðurstöður benda til þess að mikilvægt sé að táknmálstúlkar hafi tækifæri til að undirbúa sig fyrir verkefni sín. Til að tryggja gæði túlkunar ætti það að vera hagsmunamál allra túlkanotenda að túlkar fái þann undirbúning sem þeir þurfa.
dc.format.extent 453757
dc.format.extent 165-188
dc.language.iso is
dc.relation.ispartofseries Ritið; 23(2)
dc.rights info:eu-repo/semantics/openAccess
dc.title Áhrif undirbúnings á gæði táknmálstúlkunar
dc.type /dk/atira/pure/researchoutput/researchoutputtypes/contributiontojournal/article
dc.description.version Peer reviewed
dc.identifier.doi 10.33112/ritid.23.2.7
dc.contributor.department Deild kennslu- og menntunarfræði


Skrár

Þetta verk birtist í eftirfarandi safni/söfnum:

Skoða venjulega færslu