Opin vísindi

Algild hönnun: Leiðarljós að jafnfræði og tækifærum til samfélagsþátttöku : Leiðarljós að jafnræði og tækifærum til samfélagsþátttöku

Algild hönnun: Leiðarljós að jafnfræði og tækifærum til samfélagsþátttöku : Leiðarljós að jafnræði og tækifærum til samfélagsþátttöku


Title: Algild hönnun: Leiðarljós að jafnfræði og tækifærum til samfélagsþátttöku : Leiðarljós að jafnræði og tækifærum til samfélagsþátttöku
Author: Egilson, Snæfríður Þóra
Jónasdóttir, Sigrún Kristín
Date: 2021
Language: Icelandic
Scope: 621518
University/Institute: Háskólinn á Akureyri
Department: Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild
Iðjuþjálfunarfræðideild
Series: Tímarit um uppeldi og menntun; 30(2)
ISSN: 2298-8394
DOI: 10.24270/tuuom.2021.30.10
Subject: Hönnun; Fatlaðir; Stefnumótun; universal design; physical and social environment; accessibility; usability; equity; policy
URI: https://hdl.handle.net/20.500.11815/4437

Show full item record

Citation:

Egilson , S Þ & Jónasdóttir , S K 2021 , ' Algild hönnun: Leiðarljós að jafnfræði og tækifærum til samfélagsþátttöku : Leiðarljós að jafnræði og tækifærum til samfélagsþátttöku ' , Tímarit um uppeldi og menntun , bind. 30 , nr. 2 , bls. 115-133 . https://doi.org/10.24270/tuuom.2021.30.10

Abstract:

Markmið þessarar greinar er að fjalla um algilda hönnun (e. universal design) í fræðilegu samhengi og með skírskotun í rannsóknir höfunda. Sjónum er einnig beint að stefnumótandi skjölum um algilda hönnun hér á landi. Algild hönnun er byggð á gildum um jafnræði og jafna möguleika til þátttöku í samfélaginu. Lögð er áhersla á að koma til móts við mannlegan margbreytileika, það er fólk með mismunandi eiginleika, hæfni og takmarkanir. Framan af beindust áherslur algildrar hönnunar fyrst og fremst að manngerðu umhverfi en í auknum mæli er nú einnig litið til félagslegs umhverfis, stefnumótunar, verklags og viðhorfa. Enn fremur hefur áhersla á notagildi umhverfis, vöru og þjónustu aukist. Síðustu ár hafa mannréttindaáherslur einkennt umfjöllun um hugtakið og með innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hafa hérlend stjórnvöld lýst yfir stuðningi við algilda hönnun í íslensku samfélagi. Þótt hér sé fyrst og fremst fjallað um hugtakið í tengslum við fötlun hefur það mun víðtækari skírskotun, eins og fram kemur í greininni.

Files in this item

This item appears in the following Collection(s)