Opin vísindi

Heilkenni skammvinns höfuðverkjar með brottfallseinkennum og eitilfrumuhækkun í mænuvökva – tvö tilfelli og yfirlit

Heilkenni skammvinns höfuðverkjar með brottfallseinkennum og eitilfrumuhækkun í mænuvökva – tvö tilfelli og yfirlit


Title: Heilkenni skammvinns höfuðverkjar með brottfallseinkennum og eitilfrumuhækkun í mænuvökva – tvö tilfelli og yfirlit
Alternative Title: Syndrome of transient headache and neurologic deficits with cerebrospinal fluid lymphocytosis – two cases and review
Author: Kristjansson, Helgi
Sveinsson, Ólafur Árni
Date: 2021-02
Language: Icelandic
Scope: 4
University/Institute: Landspítali
Department: Læknadeild
Series: Læknablaðið; 107(2)
ISSN: 0023-7213
DOI: 10.17992/lbl.2021.02.621
Subject: Taugasjúkdómafræði; Adult; Headache/diagnosis; Humans; Lymphocytosis/diagnosis; Male; Nervous System Diseases; Stroke; Syndrome
URI: https://hdl.handle.net/20.500.11815/3564

Show full item record

Citation:

Kristjansson , H & Sveinsson , Ó Á 2021 , ' Heilkenni skammvinns höfuðverkjar með brottfallseinkennum og eitilfrumuhækkun í mænuvökva – tvö tilfelli og yfirlit ' , Læknablaðið , bind. 107 , nr. 2 , bls. 74-77 . https://doi.org/10.17992/lbl.2021.02.621

Abstract:

Ágrip Hér er lýst tveimur tilfellum af HaNDL (Headache with Neurological Deficits and cerebrospinal fluid Lymphocytosis) eða heilkenni skammvinns höfuðverkjar með brottfallseinkennum og eitilfrumuhækkun í mænuvökva. Fyrra tilfellið var þrítugur maður sem fékk endurtekin köst með höfuðverk, helftareinkennum og mikilli óáttun. Hið síðara var 41 árs maður sem fékk höfuðverk, skyndilegt málstol og hægri helftareinkenni. Í báðum tilfellum var töluverð hækkun á eitilfrumum í mænuvökva. Leit að sýkingarvöldum var neikvæð og segulómskoðanir af höfði sýndu engar meinsemdir. Einkenni gengu að fullu til baka hjá báðum sjúklingum. Orsök HaNDL er óþekkt en sumir telja ástandið orsakast af bólguviðbrögðum í kjölfar veirusýkingar. Horfur eru góðar og sjúklingar verða einkennalausir á einni til þremur vikum. Mikilvægt er að útiloka alvarlegri orsakir eins og heilaslag, innanskúmsblæðingu eða sýkingar í miðtaugakerfi. Here we describe two cases of HaNDL (Headache with Neurological Deficits and cerebrospinal fluid Lymphocytosis). A thirty year old man with episodes of headache with lateralizing symptoms and confusion and a 41 year old man with headache, aphasia and right hemiparesis. Symptoms resolved completely in both patients. Considerable cerebrospinal fluid lymphocytosis was present but no signs of CNS infection and MRIs of the brain were normal. Although the cause of HaNDL is unknown, it is thought to be triggered by a viral infection by some. The prognosis is excellent and symptoms normally resolve within 1-3 weeks. It is important to rule out more serious etiologies like stroke, subarachnoid hemorrhage or central nervous system infections.

Files in this item

This item appears in the following Collection(s)