The marketing of electricity is an increasingly significant issue following the liberalization of electricity markets. Substantial emphasis has been placed on green electricity, but the concept is vague to many consumers. In this paper, the focus is on defining green electricity from a consumer perspective and using the understanding gained to provide input for public energy policy and to improve the marketing activities of energy companies. The paper draws on findings from a qualitative study of focus groups that gathered consumer insights from five European countries. The authors argue that although defining green electricity from a consumer perspective is a complex process, several constructs, including sustainability/corporate social responsibility, local production, visual impact and saving energy, are key. The definition is strongly affected by other constructs, including scepticism, marketing, price, and the fact it does not matter who provides it as electricity looks the same to the consumer.
Markaðssetning rafmagns skiptir nú meira meira máli eftir að rafmagnsmörkuðum hefur verið
skipt upp. Sér í lagi hefur áhersla á grænt rafmagn aukist en það er þó svo að hugtakið er
fremur óljóst í huga neytenda. Í greininni er sjónum beint að því hvaða þættir skipta þá
þátttakendur máli, sem tóku þátt í rannsókninni, við skilgreiningu á grænu rafmagni.
Ennfremur er skoðað hvernig nota má skilgreininguna til að bæta árangur markaðsstarfs
orkufyrirtækja og auka skilning þeirra opinberu aðila sem koma að reglugerðum á
orkumarkaði. Niðurstöður eru byggðar á rýnihópum sem voru framkvæmdir í fimm
Evrópulöndum. Í greininni er komist að þeirri niðurstöðu að þótt það sé fremur flókið að
skilgreina grænt rafmagn út frá skynjun viðskiptavina þá eru nokkrir þættir sem skipta lykil
máli í því samhengi. Þeir eru meðal annars sjálfbærni/ábyrgð fyrirtækja, framleiðsla í
heimabyggð, sjónræn áhrif og orkusparnaður. Skilgreiningin eru undir sterkum áhrifum frá
nokkrum öðrum þáttum svo sem tortryggni, markaðssetningu, verði og þeirri staðreynd að
burt séð frá því hver framleiðir rafmagnið þá er það alltaf eins þegar það berst til viðskiptavina.