Fluid-rock interaction in the vicinity of felsic and mafic intrusions

Skrár

Læst skrá
Supplementary Material Manuscript 1 SF.docx (4.38 MB)
Læst skrá
Supplementary Material Manuscript 1 SMth.docx (132.98 KB)
Læst skrá
Supplementary Material Manuscript 1 ST.xlsx (262.53 KB)
Læst skrá
Supplementary Material Manuscript 2 SF 2.docx (4.65 MB)
Læst skrá
Supplementary Material Manuscript 2 SF1.docx (2.29 MB)

Dagsetning

Höfundar


Journal Title

Journal ISSN

Volume Title

Útgefandi

University of Iceland, School of Engineering and Natural Sciences, Faculty of Earth Sciences

Útdráttur

This research deals with the thermal and geochemical evolution of the magmatic-hydrothermal transition within the Geitafell Central Volcano (GCV), SE Iceland, to provide critical insights for high-temperature geothermal exploration. By integrating petrography, bulk-rock geochemistry, micro-analytical techniques, and thermal modeling, this study establishes a framework for understanding how intrusions of different sizes drive high-enthalpy systems. The study reveals that geothermal maturation is sustained by a suite of heat sources. Small-scale basaltic dikes (0.5 m thick) generate high-temperature pulses, inducing localized cryptic partial melting (3–10%) and high-grade metamorphism (>800 °C). Although these dikes solidify in less than a day, their thermal impact elevates host-rock temperatures for up to three years; therefore, frequent injections maintain elevated temperatures for several decades. In contrast, the medium-scale (~782 m thick) Hoffell Granite Intrusion (HGI) functions as a sustained heat engine. The HGI formed via extreme fractional crystallization (>95%), where high magmatic halogen concentrations (F, Cl) depressed its solidus; this extended the cooling process and allowed the HGI to remain a viable heat source for over 7000 years. Analysis of quartz-hosted fluid inclusions within the HGI further tracks the chemical transition from metal-rich, salt-saturated magmatic brines to circulating meteoric fluids. Overall, these findings provide evidence of the geodynamic maturation of the GCV, documenting its transition from a rift-axis to a flank-zone environment. This integrated model provides essential tools for identifying deep heat sources and mitigating technical risks, such as halite scaling and chlorine-active corrosion, when drilling into the roots of high-temperature geothermal systems in active volcanic areas.

Verkefnið felur í sér rannsóknir á breytingum í hita og jarðefnafræði á mörkum kviku og jarðhitakerfis innan Geitafellseldstöðvarinnar á Suðausturlandi. Með því fást mikilvægar upplýsingar fyrir jarðhitaleit í háhitakerfum. Með samþættingu bergfræði, jarðefnafræði bergs, mismunandi örgreiningaraðferða og varmalíkana leggur þessi rannsókn grunn að aðferðum til skilnings á því hvernig innskot af mismunandi stærð knýja jarðhitakerfi með hátt vermi. Rannsóknin leiðir í ljós að þroskasaga jarðhitakerfa ræðst af mismunandi hitagjöfum. Smáir basaltgangar (0.5 m þykkir) gefa frá sér háhitapúlsa sem valda staðbundið torséðri hlutbráðnun (3–10%) og hárri myndbreytingu (>800 °C). Þótt slíkir gangar storkni innan sólarhrings valda þeir hærri hita í grannberginu í allt að þrjú ár. Þar af leiðir að tíð kvikuinnskot viðhalda háu hitastigi áratugum saman. Á hinn bóginn virkaði hið meðalstóra (~782 m þykkt) Hoffellsgranítinnskot sem langtíma varmagjafi. Hoffellsinnskotið myndaðist við mikla hlutkristöllun (>95%) þar sem hár styrkur halógena (F, Cl) í kvikunni lækkaði bræðslumark hennar. Þetta lengdi kælingarferlið og gerði það að verkum að Hoffellsinnskotið entist sem hitagjafi í yfir 7000 ár. Greining á vökvainnlyksum í kvarsi frá Hoffellsinskotinu leiðir í ljós breytingar í efnasamsetningu frá málmríkum, saltmettuðum kvikupæklum yfir í vökva sem var að uppruna grunnvatn í hringrásarkerfi. Í heildina gefa þessar niðurstöður vísbendingar um jarðfræðilega þróun Geitafells og sýna fram á hvernig það fór frá því að vera staðsett nærri rekás yfir í að vera innan hliðargosbeltis. Þetta samþætta líkan leggur grunn að aðferðafræði til að bera kennsl á djúpa hitagjafa og draga úr tæknilegri áhættu, svo sem saltútfellingum og klórtæringu, þegar borað er í rætur virkra eldfjalla.

Lýsing

Efnisorð

Geitafell central volcano, basaltic-felsic intrusions, magmatic-hydrothermal system, fluid-rock interaction, thermal modeling, geothermal exploration, Geitafell, Basalt, Jarðefnafræði, Varmafræði, Bergfræði

Citation