Opin vísindi

Stærðfræðimenntun á 20. öld: Áhrif Ólafs Daníelssonar

Skoða venjulega færslu

dc.contributor.author Bjarnadóttir, Kristín
dc.date.accessioned 2024-05-01T01:04:33Z
dc.date.available 2024-05-01T01:04:33Z
dc.date.issued 2013
dc.identifier.citation Bjarnadóttir , K 2013 , ' Stærðfræðimenntun á 20. öld: Áhrif Ólafs Daníelssonar ' , Netla . < https://netla.hi.is/staerdfraedimenntun-a-tuttugustu-old-ahrif-olafs-danielssonar/ >
dc.identifier.issn 1670-0244
dc.identifier.other 221461906
dc.identifier.other cfe74a83-5e3c-4739-a325-477c8496d3d3
dc.identifier.uri https://hdl.handle.net/20.500.11815/4850
dc.description.abstract Ólafur Dan Daníelsson (1877–1957) lauk Mag.Scient.-prófi í stærðfræði frá Kaup-mannahafnarháskóla árið 1904. Næstu ár ritaði hann fyrstu útgáfu Reikningsbókar sinnar, sem út kom árið 1906 og lauk við doktorsritgerð á sviði rúmfræði árið 1909, fyrstur Íslendinga. Meðal kennara hans var Julius Petersen, kunnur kennslubóka-höfundur. Ólafur réðst að Kennaraskóla Íslands við stofnun hans 1908 og mótaði stærðfræðiskilning fyrstu 160 kennaraefnanna sem brautskráðust þaðan. Hann vann ötullega að stofnun stærðfræðideildar við Menntaskólann í Reykjavík árið 1919 og var ráðinn til að móta hana. Ólafur samdi fjórar kennslubækur í stærð-fræði, Reikningsbók, Um flatarmyndir, Kennslubók í hornafræði og Kennslubók í algebru. Kennsla hans og kennslubækur, sér í lagi í reikningi og algebru, mótuðu stærðfræðimenntun á Íslandi fram á miðjan áttunda áratug tuttugustu aldar , þar sem þær voru námsefni til landsprófs, strangs inntökuprófs í menntaskóla og kennaraskóla. Reikningsbók Ólafs var einnig fyrirmynd reikningsbókar fyrir börn sem valin var til útgáfu hjá Ríkisútgáfu námsbóka. Afstaða Ólafs til stærðfræði og stærðfræðikennslu var strangfræðileg, hann taldi stærðfræði fullkomnustu vísinda-grein sem til væri og markmið hans var að leiða nemendur inn í vinnusal vísindanna. Hann vildi skýra stærðfræðina frá rótum ef hann taldi það mögulegt, ella geymdi hann rökstuðning þar til hann taldi sig geta undirbyggt hann nægilega vel á fræðilegan hátt.
dc.format.extent 537896
dc.format.extent
dc.language.iso is
dc.relation.ispartofseries Netla; ()
dc.rights info:eu-repo/semantics/openAccess
dc.subject Stærðfræði (allt)
dc.title Stærðfræðimenntun á 20. öld: Áhrif Ólafs Daníelssonar
dc.type /dk/atira/pure/researchoutput/researchoutputtypes/contributiontojournal/article
dc.description.version Peer reviewed
dc.relation.url https://netla.hi.is/staerdfraedimenntun-a-tuttugustu-old-ahrif-olafs-danielssonar/
dc.contributor.school Menntavísindasvið


Skrár

Þetta verk birtist í eftirfarandi safni/söfnum:

Skoða venjulega færslu