Skoða venjulega færslu

dc.contributor Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum
dc.contributor.author Ingvarsson, Sigurður
dc.contributor.author Sigurðardóttir, Anna Karen
dc.contributor.author Erlingsdóttir, Ásthildur
dc.contributor.author Bragason, Birkir Thor
dc.date.accessioned 2023-06-23T01:12:46Z
dc.date.available 2023-06-23T01:12:46Z
dc.date.issued 2023-04-19
dc.identifier.citation Ingvarsson , S , Sigurðardóttir , A K , Erlingsdóttir , Á & Bragason , B T 2023 , Vísindadagur Keldna 2023 . Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum . < https://keldur.is/sites/keldur.is/files/2023-04/V%C3%ADsindadagur2023_uppf%C3%A6rt.pdf >
dc.identifier.other 122045805
dc.identifier.other 44b86136-cdf2-49d3-8e28-4816048c8542
dc.identifier.uri https://hdl.handle.net/20.500.11815/4293
dc.description.abstract Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum fagnar sjötíu og fimm ára starfsafmæli í ár. Af því tilefni er ráðstefna/vísindadagur sem fer fram 19. apríl 2023 á bókasafni Tilraunastöðvarinnar. Tilraunastöðin starfar fyrst og fremst sem rannsóknastofa á háskólastigi og er eini vettvangurinn í landinu þar sem rannsóknir, skimunarverkefni og greiningar fara fram á dýrasjúkdómum á mörgum fræðasviðum. Rannsakaðir eru sjúkdómar og smitefni í flestum spendýrategundum Íslands og allmörgum fugla-, fisk- og lindýrategundum. Tilraunastöðin er í nánu samstarfi við atvinnulífið, má þar nefna landbúnað, fiskeldi, matvælaframleiðslu og líftækniiðnað. Starfið er rótgróið og gott dæmi um samlegðaráhrif vísindastarfs og atvinnulífs. Vel hefur gengið að vinna með þær sérstöku aðstæður sem eru á Íslandi varðandi dýrasjúkdóma og greiningar á þeim. Vísindadagurinn hefur fest sig í sessi sem vettvangur fyrir kynningu á starfsemi og fræðasviðum Keldna. Ráðstefnan er allan daginn og aðgangur er öllum heimill að kostnaðarlausu. Nú er vísindadagurinn með almennara sniði en oft áður og er m.a. ætlaður sem samráðsvettvangur hagaðila sem starfa í lífvísinda- og dýraheilbrigðisfræðum. Þeir fyrirlesarar sem sjá um fræðsluna eru sérfræðingar á Keldum og aðrir sérfræðingar frá háskólum og vísindastofnunum innanlands og erlendis. Einnig verða kynnt veggspjöld sem greina frá ýmsum verkefnum á Keldum. Anna Karen Sigurðardóttir, Ásthildur Erlingsdóttir og Birkir Þór Bragason eru í vísindanefnd sem sér um undirbúning og skipulag. Ég færi þeim mínar bestu þakkir fyrir spennandi og fjölbreytta dagsskrá. Mínar bestu árnaðaróskir til núverandi og fyrrverandi Keldnastarfsmanna og hamingjuóskir með árangur síðastliðna áratugi. Framlag þeirra hefur gert Keldur að þeirri framsýnu rannsóknastofnun dýrasjúkdóma sem hún er í dag. Á Keldum er fagleg forysta á ýmsum fræðasviðum og mikil þekking og reynsla. Ég óska Tilraunastöðinni og starfsmönnum hennar áframhaldandi velgengni og velfarnaðar í framtíðinni. Sigurður Ingvarsson, forstöðumaður og prófessor
dc.format.extent 21
dc.format.extent 3507558
dc.language.iso is
dc.publisher Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum
dc.rights info:eu-repo/semantics/restrictedAccess
dc.title Vísindadagur Keldna 2023
dc.type /dk/atira/pure/researchoutput/researchoutputtypes/othercontribution/other
dc.relation.url https://keldur.is/sites/keldur.is/files/2023-04/V%C3%ADsindadagur2023_uppf%C3%A6rt.pdf
dc.contributor.department Læknadeild


Skrár

Þetta verk birtist í eftirfarandi safni/söfnum:

Skoða venjulega færslu